Hæ
Já takk fyrir skemmtilega æfingu áðan
En ætla bara að minna ykkur á fjáröflunina. Það þarf að skila blöðunum
á næsta miðvikudag, bannað að gleyma. Og allar helst að selja 8-10
pakkningar - það er ekkert mál!
En svo muniði eftir
grunnskólamótinu næstu helgi
Austurbæjarskólastelpur
fá vonandi að vera með ef þær eru með lið úr sínum skóla, en þið eruð
nú þegar 4 að æfa þaðan, Kristín, Kamelía, Unnur og Karen, þannig að
þið eruð komnar með heilt lið! - þ.e.a.s. ef allar komast. Annars er
ekkert mál að redda einum varamanni, er það?

Svo væri það líka vel þegið ef þið vilduð vera eitthvað í
sjoppunni - t.d. á milli leikja eða eitthvað eða áður en þið byrjið að keppa - ef þess þarf.
En svo er annað, það er
krakkablaksmót á sunnudeginum eftir grunnskólamótið, þ.e.a.s.
2. mars.
Það er spurning hvort þið viljið fara á það mót þrátt fyrir að hafa
verið að keppa daginn áður. En á grunnskólamótinu spilið þið auðvitað
ekki sem heilt lið.
En þannig er mál með vexti að ég er að fara að keppa þann dag og gæti
því ekki verið með ykkur, hugsanlega eitthvað smá - en líklega ekki.
Masa kemst en þá er spurning hvort þið treystið ykkur til að vera einar
og sjá um að mæta í leikina á réttum tíma og allt svoleiðis, Masa myndi
stjórna innáskiptingum. Guðrún kemst hugsanlega en það er ekkert alveg
víst, og hún myndi þá vera með yngri krökkunum fyrst (ef þið eigið leik
á sama tíma yrði hún að vera með þeim - skiljiði)
En kannski væri eitthvert foreldri til í að bjóða sig fram til að "sjá
um" að þið mætið á réttum tíma og allt svoleiðis - ef það þarf. Þið
eruð náttúrlega líka orðnar svo stórar, þið ættuð að geta fylgst með
þessu sjálfar

En látið mig alla vega vita sem allra allra fyrst hvort þetta sé
eitthvað sem þið hafið áhuga á, ég þyrfti þá að vera búin að skrá ykkur
fyrir
mánudaginn næsta! Allar að kommenta um hvort þær komist fyrir mánudaginn - ef við náum ekki í lið, þá nær þetta ekkert lengra.
Sem sagt látið vita ef þið viljið koma og hvort þið komist fyrir mánudaginn
en þið vitið þá líka að þið mynduð koma til með að vera án mín

en Masa myndi samt vera
Kv. Fjóla